Þú getur sótt pakkann þinn á Þjónustuborð Kringlunnar

Þessi hluti inniheldur ekkert efni.

Image caption appears here

Add your deal, information or promotional text

Skilmálar

Viðskiptaskilmálar

Almennt

Vera Infinity 28 ehf/ VERA DESIGN rekur vefverslunina veradesign.is

Skilmálar þessir gilda um kaup í vefverslun VERA DESIGN. Með því að ganga frá pöntun staðfestir kaupandi að hafa kynnt sér skilmálana og samþykkt þá.

VERA DESIGN áskilur sér rétt til að uppfæra skilmálana þegar þörf krefur. Sú útgáfa sem birt er á vefnum þegar kaup fara fram gildir um viðskiptin.

Vörur og verð

Öll verð í vefversluninni eru gefin upp í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt nema annað sé sérstaklega tekið fram.

Sendingarkostnaður, ef við á, birtist í greiðsluferlinu áður en pöntun er staðfest.

Við leggjum áherslu á að upplýsingar, myndir og verð séu rétt. VERA DESIGN áskilur sér þó rétt til að leiðrétta augljósar innsláttarvillur, rangt verð eða rangar lagerupplýsingar. Ef villa hefur áhrif á pöntun höfum við samband við kaupanda eins fljótt og auðið er.

Pantanir og greiðslur

Hægt er að greiða með þeim greiðslumátum sem birtast í greiðsluferlinu, meðal annars Visa, Mastercard, Netgíró og Pei.

Greiðsla og staðfesting hennar fer eftir skilmálum þess greiðslumáta sem kaupandi velur. Pöntun telst samþykkt þegar staðfesting hefur verið send á netfang kaupanda.

Ef pöntuð vara reynist uppseld höfum við samband og bjóðum eftir atvikum sambærilega vöru, upplýsingar um áætlaðan afhendingartíma eða fulla endurgreiðslu.

Afgreiðsla og afhending

Við leggjum okkur fram um að afgreiða pantanir hratt. Pantanir eru að jafnaði sendar frá okkur innan 1–2 virkra daga.

Afgreiðslutími getur verið lengri á álagstímum, svo sem fyrir jól, á stórum tilboðsdögum og í kringum Black Friday.

Pantanir eru sendar með Póstinum eða Dropp. Þegar sending hefur verið afgreidd fær kaupandi staðfestingu og rakningarnúmer þegar það á við.

Allir skartgripir eru afhentir í upprunalegum umbúðum frá VERA DESIGN án aukakostnaðar. Við pökkum vörum vandlega til að draga úr hættu á skemmdum í flutningi.

Kaupandi ber ábyrgð á að réttar afhendingar- og samskiptaupplýsingar séu skráðar. Ef villa kemur í ljós eftir að pöntun hefur verið staðfest skal hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er.

Sótt á Þjónustuborð Kringlunnar

Hægt er að velja að sækja pöntun á Þjónustuborð Kringlunnar án aukakostnaðar.

Tilkynning er send þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar. Ekki skal mæta eftir pöntun fyrr en sú tilkynning hefur borist.

Sendingarkostnaður

Frí sending er í boði þegar verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira.

Sendingarkostnaður bætist við pantanir undir 15.000 kr. samkvæmt þeim afhendingarmáta sem valinn er. Kostnaðurinn kemur fram í greiðsluferlinu áður en gengið er frá pöntun.

Skemmdir í flutningi eða röng vara

Við hvetjum kaupanda til að skoða vöruna og umbúðirnar við móttöku.

Ef vara er skemmd, gölluð eða röng skal hafa samband við VERA DESIGN eins fljótt og auðið er. Sendu pöntunarnúmer, lýsingu á málinu og ljósmyndir þegar það á við á netfangið:

online@veradesign.is

Varðveittu vöruna og umbúðirnar þar til leiðbeiningar hafa borist. Ef röng eða gölluð vara var send greiðir VERA DESIGN eðlilegan kostnað vegna skilanna.

Réttur til að falla frá netkaupum

Samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga hefur neytandi almennt rétt til að falla frá netkaupum án þess að tilgreina ástæðu innan 14 daga.

Sjá nánar um rétt til að falla frá samningi

Fresturinn hefst þegar neytandi eða annar aðili sem hann tilgreinir, annar en flutningsaðilinn, fær vöruna í sína vörslu.

Til að nýta réttinn þarf að senda VERA DESIGN skýra og sannanlega tilkynningu innan frestsins. Taktu fram pöntunarnúmer og hvaða vöru eða vörum þú vilt skila.

Neytandi getur notað samræmda staðlaða uppsagnareyðublaðið hér fyrir neðan eða sent aðra ótvíræða yfirlýsingu um að hann vilji falla frá kaupunum.

Tilkynningar um skil skulu sendar á:

online@veradesign.is

Eftir að tilkynning hefur verið send skal vörunni skilað án ástæðulauss dráttar og eigi síðar en 14 dögum síðar.

Samræmt staðlað uppsagnareyðublað

Eyðublaðið skal aðeins fyllt út og sent ef neytandi vill falla frá samningi.

Sækja samræmt staðlað uppsagnareyðublað frá Neytendastofu

Senda til: 

Vera Design
Kringlunni 4–12
103 Reykjavík
Ísland
online@veradesign.is

 

Ástand skilavöru

Neytandi má skoða og prófa vöru með sama hætti og almennt væri heimilt í verslun.

Varan skal vera hrein og skilað í upprunalegum umbúðum ásamt fylgihlutum og fylgigögnum þegar það á við.

Neytandi getur borið ábyrgð á rýrnun verðgildis ef varan hefur verið meðhöndluð umfram það sem nauðsynlegt er til að kanna eðli hennar, eiginleika og virkni. Endurgreiðsla getur þá lækkað sem nemur verðrýrnuninni.

Þegar skartgripir eru mátaðir skal gæta þess að þeir komist ekki í snertingu við ilmvatn, krem eða önnur efni sem geta skilið eftir lykt, bletti eða ummerki.

Endursending

Viðskiptavinur greiðir almennt beinan kostnað við að skila vöru þegar fallið er frá netkaupum. Við mælum með rekjanlegri sendingu og að kvittun sé varðveitt þar til staðfesting á móttöku hefur borist.

Skilavörur sendist á:

Vera Design 
Kringlunni 4–12
103 Reykjavík
Ísland

Einnig er hægt að afhenda netpöntun á Þjónustuborð Kringlunnar eftir að haft hefur verið samband við VERA DESIGN og skilin samþykkt.

Endurgreiðsla vegna netkaupa

Þegar lögbundinn réttur til að falla frá netkaupum er nýttur endurgreiðir VERA DESIGN kaupverð vörunnar og þann almenna sendingarkostnað sem greiddur var við kaupin.

Viðbótarkostnaður vegna dýrari afhendingarmáta en ódýrasti staðlaði kosturinn sem VERA DESIGN bauð er ekki endurgreiddur.

Endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning um að fallið sé frá kaupunum berst. VERA DESIGN getur þó beðið með endurgreiðslu þar til varan hefur borist eða neytandi hefur lagt fram sönnun fyrir endursendingu hennar, hvort sem gerist fyrr.

Endurgreitt er með sama greiðslumiðli og notaður var við kaupin nema annað hafi sérstaklega verið samþykkt.

Skipti

Ef óskað er eftir að skipta vöru, til dæmis í aðra stærð eða lit, skal senda pöntunarnúmer og upplýsingar um óskina á:

online@veradesign.is

Þegar skilyrði skipta eru uppfyllt sendir VERA DESIGN nýju vöruna án viðbótar sendingarkostnaðar. Viðskiptavinur greiðir kostnað við að senda upphaflegu vöruna til baka nema um ranga eða gallaða vöru sé að ræða.

Útsöluvörur

Lögbundinn 14 daga réttur til að falla frá netkaupum gildir einnig um vörur sem keyptar eru á útsölu eða tilboði.

Sérstök skilyrði geta gilt um frjáls skipti umfram lögbundinn rétt, enda séu þau kynnt með skýrum hætti fyrir kaupin.

Undantekningar frá rétti til að falla frá kaupum

Réttur til að falla frá kaupum gildir meðal annars ekki um vörur sem hafa verið sérsmíðaðar eða aðlagaðar sérstaklega að óskum viðskiptavinar. Það á til dæmis við um áletraðar vörur og hringa sem hafa verið stækkaðir eða minnkaðir sérstaklega.

Af hreinlætisástæðum er ekki hægt að skila innsigluðum götunarlokkum eða sambærilegri vöru ef innsigli hefur verið rofið eftir afhendingu.

Þessar undantekningar takmarka ekki rétt neytanda ef vara reynist gölluð.

Gallaðar vörur og kvartanir

Um galla og réttindi neytenda fer samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup.

Kvörtun skal send án ástæðulauss dráttar eftir að galli kemur í ljós. Almennur kvörtunarfrestur er tvö ár frá afhendingu vörunnar. Ef vöru eða hlutum hennar er ætlaður verulega lengri endingartími getur fresturinn verið fimm ár.

Lögbundinn réttur vegna galla tekur ekki til skemmda sem rekja má til rangrar notkunar, ófullnægjandi umhirðu, óhapps eða eðlilegs slits.

Kvartanir skulu sendar á:

online@veradesign.is

Taktu fram pöntunarnúmer, lýsingu á gallanum og láttu ljósmyndir fylgja þegar það á við. VERA DESIGN veitir leiðbeiningar um næstu skref áður en vara er send til baka.

Ef kvörtun er réttmæt greiðir VERA DESIGN eðlilegan og nauðsynlegan sendingarkostnað. Úrræði geta eftir atvikum verið viðgerð, ný afhending, afsláttur eða endurgreiðsla í samræmi við lög.

Persónuvernd

VERA DESIGN meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við gildandi lög og persónuverndarstefnu fyrirtækisins.

Nánari upplýsingar um söfnun, notkun og varðveislu persónuupplýsinga ásamt notkun vafrakaka er að finna í persónuverndarstefnu VERA DESIGN.

Fyrirspurnir vegna persónuverndar skulu sendar á:

online@veradesign.is

Lög og varnarþing

Um viðskipti við VERA DESIGN gilda íslensk lög.

Komi upp ágreiningur munu aðilar leitast við að leysa hann sín á milli. Náist ekki samkomulag má vísa málinu til viðeigandi úrskurðaraðila eða dómstóla samkvæmt íslenskum lögum.

Ef ekki tekst að leysa ágreining milli neytanda og VERA DESIGN getur neytandi leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Nefndin er sjálfstæður úrskurðaraðili sem fjallar um ágreining milli neytenda og seljenda vegna kaupa á vöru og þjónustu.

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa
Borgartúni 29
105 Reykjavík

kvth.is

Mál sem rekin eru fyrir dómstólum skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að því marki sem það samræmist ófrávíkjanlegum reglum um réttindi neytenda.

Samskiptaupplýsingar

Vera Design
Kringlunni 4–12
103 Reykjavík
Ísland

Netfang:

online@veradesign.is

Search