VERA DESIGN rekur vefverslunina veradesign.is/veradesignjewellery.com.
Allar pantanir eru sendar sem rekjanlegar sendingar með Póstinum eða Dropp. Við leggjum mikla áherslu á að pakka öllum vörum vandlega svo þær komist heilar og óskemmdar til viðtakanda.
Skartgripirnir eru afhentir í upprunalegum umbúðum frá VERA DESIGN án aukakostnaðar.
Viðskiptavinir eru hvattir til að skoða vöruna og umbúðirnar við móttöku. Ef sending eða innihald hennar hefur skemmst skal hafa samband við VERA DESIGN eins fljótt og auðið er í netfangiðonline@veradesign.is Gott er að varðveita umbúðir og taka ljósmyndir af skemmdunum.
Við leggjum okkur fram um að afgreiða pantanir hratt. Pantanir eru að jafnaði sendar frá okkur innan 1–2 virkra daga.
Afgreiðslutími getur verið lengri á álagstímum, svo sem fyrir jól og í kringum Black Friday.
Þegar pöntun hefur verið send fær viðskiptavinur staðfestingu og rakningarnúmer, þegar það á við.
Viðskiptavinir geta einnig nýtt sér að sækja kaupin sín á Þjónustuborð Kringlunnar þeim að kostnaðarlausu.
Frí sending er í boði þegar verslað er fyrir 15.000kr. eða meira.
Sendingarkostnaður bætist við pantanir undir 15.000kr. samkvæmt gjaldskrá flutningsaðila okkar.
Kostnaður vegna þess að skila vöru er greiddur af viðskiptavini, nema varan sé gölluð eða röng vara hafi verið afhent.
Við sendingar til landa utan Íslands geta tollar, virðisaukaskattur og önnur opinber gjöld fallið til í viðtökulandinu.
Slík gjöld eru ekki innifalin í kaupverði eða sendingarkostnaði nema annað sé sérstaklega tekið fram við greiðslu. Viðskiptavinur ber ábyrgð á greiðslu þeirra og á að kynna sér reglur viðtökulandsins áður en pöntun er gerð.
Tollyfirvöld kunna að opna og skoða sendingar sem fara milli landa.
Viðskiptavinur sem kaupir vöru í netverslun VERA DESIGN hefur almennt rétt til að falla frá kaupunum án sérstakrar ástæðu innan 14 daga frá því að hann eða aðili á hans vegum tekur við vörunni.
Til að nýta réttinn þarf viðskiptavinur að tilkynna VERA DESIGN með skýrum og sannanlegum hætti innan frestsins með tölvupósti á online@veradesign.is
Eftir að tilkynning hefur verið send skal vörunni skilað án ástæðulauss dráttar og eigi síðar en 14 dögum síðar.
Viðskiptavinur greiðir beinan kostnað við að skila vörunni og ber ábyrgð á henni þar til hún hefur borist VERA DESIGN. Við mælum því með rekjanlegri sendingu og að kvittun fyrir henni sé varðveitt.
Vöru skal skila í upprunalegum umbúðum ásamt öllum fylgigögnum, ef við á.
Skilavörur sendist á:
Vera Design
Kringlunni 4–12
103 Reykjavík
Ísland
Viðskiptavinur má skoða og prófa vöru með sama hætti og almennt væri heimilt í verslun.
Viðskiptavinur getur borið ábyrgð á rýrnun verðgildis vörunnar ef hún hefur verið meðhöndluð umfram það sem nauðsynlegt er til að kanna eðli hennar, eiginleika og virkni. Ef varan ber merki um notkun getur endurgreiðsla því lækkað sem nemur verðrýrnun hennar.
Þegar skartgripir eru mátaðir skal gæta þess að þeir komist ekki í snertingu við ilmvatn, krem eða önnur efni sem geta skilið eftir lykt, bletti eða önnur ummerki.
Ef skilyrði um skil eru uppfyllt endurgreiðir VERA DESIGN kaupverð vörunnar og þann almenna sendingarkostnað sem viðskiptavinur greiddi við kaupin, þegar lögbundinn réttur til að falla frá kaupunum á við.
Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema sérstaklega sé samið um annað.
Endurgreiðsla fer fram eins fljótt og kostur er og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning um að fallið sé frá kaupunum berst. VERA DESIGN er þó heimilt að bíða með endurgreiðslu þar til varan hefur borist eða viðskiptavinur hefur sýnt fram á að hún hafi verið send til baka.
Óski viðskiptavinur eftir að skipta vöru, til dæmis í aðra stærð eða lit, skal hafa samband viðonline@veradesign.is
Þegar skilyrði vöruskila eru uppfyllt sendir VERA DESIGN nýju vöruna án viðbótar sendingarkostnaðar. Viðskiptavinur greiðir kostnaðinn við að senda upphaflegu vöruna til baka.
Lögbundinn 14 daga réttur til að falla frá netkaupum gildir almennt einnig um vörur sem keyptar eru á útsölu eða tilboði.
Ef um skipti eða skil umfram lögbundinn rétt er að ræða áskilur VERA DESIGN sér rétt til að setja sérstök skilyrði fyrir útsöluvörur, enda séu þau skilyrði kynnt viðskiptavini með skýrum hætti fyrir kaupin.
Réttur til að falla frá kaupum getur meðal annars fallið niður þegar vara hefur verið sérsmíðuð eða sérstaklega aðlöguð að óskum viðskiptavinar.
Aðrar lögbundnar undantekningar geta einnig átt við eftir eðli vörunnar og meðferð hennar.
Um galla og réttindi neytenda fer samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Almennur kvörtunarfrestur vegna galla er tvö ár frá afhendingu vörunnar.
Lögbundinn réttur vegna galla nær ekki til skemmda sem rekja má til rangrar notkunar, ófullnægjandi umhirðu, óhapps eða eðlilegs slits.
Ef vara reynist gölluð skal hafa samband við VERA DESIGN eins fljótt og auðið er í netfanginuonline@veradesign.is Nauðsynlegt getur verið að senda ljósmyndir og upplýsingar um pöntunina svo hægt sé að meta málið.
Ef kvörtun er réttmæt greiðir VERA DESIGN eðlilegan og nauðsynlegan sendingarkostnað vegna málsins. Úrræði vegna galla geta eftir atvikum verið viðgerð, ný afhending, afsláttur eða endurgreiðsla í samræmi við lög.
Gallaðar vörur sendist, að fengnum leiðbeiningum frá VERA DESIGN, á:
Vera Design
Kringlunni 4–12
103 Reykjavík
Ísland
Ef í ljós kemur að pöntuð vara er ekki til á lager mun VERA DESIGN hafa samband við viðskiptavin eins fljótt og auðið er.
Viðskiptavinur fær þá upplýsingar um áætlaðan afhendingartíma, möguleika á sambærilegri vöru eða fulla endurgreiðslu.
Hægt er að greiða með þeim greiðslumátum sem birtast við greiðslu í netversluninni, meðal annars með Visa - Mastercard - Netgíró - Pei
Greiðsla er færð á kort þegar pöntun hefur verið afgreidd til sendingar, nema annað komi skýrt fram við greiðslu.
Verð og gjaldmiðill birtast í netversluninni. Öll opinber gjöld eru innifalin í verði þegar það á við. Sendingarkostnaður birtist sérstaklega áður en gengið er frá kaupum.
VERA DESIGN meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlög.
Viðskiptavinur getur óskað eftir upplýsingum um þær persónuupplýsingar sem VERA DESIGN vinnur um hann, leiðréttingu þeirra eða eyðingu þegar skilyrði laga eru uppfyllt. Beiðnir skulu sendar á online@veradesign.is.
Persónuupplýsingum er aðeins miðlað til þjónustuaðila þegar það er nauðsynlegt til að afgreiða pantanir, taka við greiðslum, afhenda vörur eða uppfylla lagaskyldur. Nánari upplýsingar koma fram í persónuverndarstefnu VERA DESIGN
Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kjósi að leyfa ekki vafrakökur getur neytandi samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu VERA DESIGN, þar á meðal verslunarkerfið.
VERA DESIGN notar Google Analytics og Facebook Pixel til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefsvæðið eru ýmsum nafnlausum upplýsingum safnað saman og þær sendar VERA DESIGN, t.d. frá hvaða vefsvæði er komið, tími og dagsetning komu á vefsvæðið, leitarorð sem notað var og gerð vafra og stýrikerfis.
VERA DESIGN notar þessar upplýsingar svo til að gera endurbætur á vefsvæði sínu notendum sínum til hagsbóta. Google Analytics og Facebook Pixel nota sínar eigin kökur en VERA DESIGN áskilur sér rétt til að birta notendum vefsvæðisins og VIP meðlimum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google Analytics og Facebook Pixel. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð vafrakaka og geta þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar slökkt á notkun þeirra.
Með því að nota vefverslun VERA DESIGN samþykkir neytandi að VERA DESIGN safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum.
Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á www.aboutcookies.org.uk. Möguleikar neytanda á notkun vefsíðu VERA DESIGN gætu takmarkast við slíkar breytingar.
Um viðskipti við VERA DESIGN gilda íslensk lög.
Komi upp ágreiningur munu aðilar leitast við að leysa hann sín á milli. Náist ekki samkomulag má vísa málinu til viðeigandi úrskurðaraðila eða dómstóla samkvæmt íslenskum lögum.
Mál sem rekin eru fyrir dómstólum skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, að því marki sem slíkt samræmist ófrávíkjanlegum reglum um réttindi neytenda.
Vera Design
Kringlunni 4–12
103 Reykjavík
Ísland
Netfang:online@veradesign.is